Addi litli Bald
Ævintýrin mín...




 

Í miðju jólastressinu var Addi í bílferð með móður sinni og á latabæ hljómaði lagið Í betlehem er barn oss fædd ..  Íris spurði Adda "Hvar fæddist Jesús?" "auðvita í Betlehem" svaraði Addi.

- "En hvar fæddist Guð" spurði Íris.

Og eftir smá þögn "Í Reykjavík". 

Þannig að Reykjavík er nafli heimsins.

Á matsmálstímum í Furugerðinu fær Addi að vera hjálpar kokkur með pabba sínum og svo er hann líka þjónn.

Þegar hann var búinn að bera á borðið leirtau, hnífapör og eitthvað meðlæti kom hann að sækja kók fyrir móðir sína.  Hann kom til baka eftir smá stund og spurði pabba sinn hvaða kók pabbi ætlaði að drekka.  Baldvin svaraði að hann drykki ekki kók, bara vatn.

-"og bjór" svaraði hann strax.

Addi var einhvern tíman búinn að snúa sér í hringi á stofugólfinu og stóð upp hann var aðeins valtur á löppunum og sagði.  Pabbi húsið er að detta.

 Þegar við vorum í Danmörku sumarið 2008 fórum við í dýragarðinn.  Þar urðum við vitni að því þegar tvö ljón slógust.  Addi hrópaði þá hátt til þeirra "EINN" og hættu þau þá.  Því að þau vita eins og önnur börn að maður fer út í horn þegar það er sagt þrír.

 Einu sinni þegar feðgarnir voru tveir heima þá var Addi aðeins að láta fara fyrir sér.  Neitaði að gera það sem hann var beðinn um að gera og gerði það sem hann veit að hann má ekki gera.  Þetta reyndi eitthvað á taugarnar hjá föður hans og kallaði Baldvin á hann "viltu að ég segi einn".  Og svarið "já já, bara ekki segja tveir og þrír".

 Lítil systir
Adda langar greinilega í lítið systkini og finnst mjög ósanngjarnt að mörg börn á deildinni hans á leikskólanum eru að eignast eitt slíkt. Hann talar mikið um að fá litla systur sem megi vera í hans herbergi eða Eyþórs herbergi (fer eftir skapinu).
Ég spurði hann um daginn hvar hann ætlaði að fá þessa litlu systur og ekki stóð á svar: á bókasafninu!

Mamma ljóta
Ég (íris) kem fram einn morgunin og var frekar mygluð. Ég hafði ekki þvegið af mér maskarann daginn áður og hann náði niður á kinnar og hárið stóð allt í loftið.
Þá segir Addi við mig: Mamma þú ert soldið ljót!

OJOJOJOJOJOJ

Í gær náði ég í Adda á leikskólann og var hann að leika sér í sandkassanum þegar ég sótti hann.  Óhætt er að segja að hann hafi verið mjög skítugur. En þegar Addi er skítugur, lítur hann oft á skítinn og segir ojojojojoj.

Til að gera eitthvað annað en að fara heim og horfa á Bubba byggir tókum við feðgarnir smá göngutúr í miðborg Reykjavíkur.  Við sáum endur, flugvél, strætó o.m.fl.  Þegar við erum svo á leiðina í bílinn mætum við svertingja frá svörtustu Afríku.  Við það snar stoppar Addi grettir sig framaní manninn og segir hátt og skýrt OJOJOJ.   
Baldvin


Addi á bangsa sem segir I love you þegar það er ýtt á hann. Ef maður spyr Adda: hvað segir bangsinn, þá svarar hann: æ lú lú.

 

Ég var að klæða Adda í stuttbuxur um daginn í góða veðrinu, þá segir hann við mig; æ mamma loka buxunum!

 

Öll fjölskyldan liggur uppi í hjónarúmi og er að kela. Baldvin er eitthvað að fíflast í Adda og er að kitla hann. Þá lítur Addi á hann og segir ýkt alvarlegur: hættu þessu!

Einn sem er búin að heyra þessa setningu einu sinni eða tvisvar ;)

Addi var með pabba sínum á einni af Olís stöðvunum þar sem pabbi hans var eitthvað að vesenast tengt vinnunni. Svo sér Addi klámblað með mynd af allsberri konu framan á. Hann lítur á pabba sinn, hlær og segir: pabbi tona (kona) úti á rassinum!

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 68014
Samtals gestir: 19415
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:41:19